Um okkur

Um Kattakaffihúsið

​Kattakaffihúsið er fyrsta kaffihúsið af sínu tagi á Íslandi og opnaði í Bergstaðastræti 10A 1. mars 2018. Kaffihús af þessu tagi hafa verið að ryðja sér til rúms út um allan heim sl. ár en það fyrsta opnaði í Taiwan 1998. Kattakaffihús eru sérstaklega vinsæl í Asíu en hafa opnað sl. ár í Bandaríkjunum, Kanada og út um alla Evrópu.

Okkar markmið er að skapa hlýlegt og notalegt umhverfi þar sem fólk getur slakað á, gætt sér á góðum veitingum og hitt kisurnar okkar Við viljum að kisunum líði vel á meðan að þær leita að framtíðarheimili og velferð þeirra er höfð að leiðarljósi á kaffihúsinu. 

Þrátt fyrir að vera kattakaffihús, stefnum við einnig á að vera einstakt kaffihús fyrir alla, ekki bara kattavini, en vonandi ná kisurnar okkar að heilla ykkur upp úr skónum í leiðinni. 

​​​Kettirnir koma flestar frá einstaklingum sem ekki geta átt þær lengur oftast vegna ofnæmis eða flutninga. Einnig erum við í samstarfi við Dýrahjálp Íslands og höfum fengið kisur frá þeim sem eru að leita að nýju heimili. 

Konurnar á bak við Kattakaffihúsið

Gígja Sara Björnsson og Ragnheiður Birgisdóttir eru eigendur og stofnendur Kattakaffihússins. Þær hafa verið vinkonur til margra ára og áttu sér draum um að drekka kaffi, tala um ketti og hjálpa köttum í heimilisleit. Þær höfðu heyrt af því fyrir nokkrum árum að úti í heimi væru til kattakaffihús og hugsðu hvað það væri frábært að gera slíkt á Íslandi. Árið 2016 fór boltinn af stað og þær fóru að gera drög að hugmyndinni að Kattakaffihúsinu. Þann 1. mars 2018 rættist svo draumurinn og Kattakaffihúisið opnaði í Bergstaðastæri 10a í Reykjavík.