SPURT & SVARAÐ

Hvað er kattakaffihús?
Kattakaffihús er kaffihús þar sem í flestum tilvikum kettir búa, Það eru ýmsar útgáfur af kattakaffihúsum en sum aðstoða ketti í heimilisleit og búa kisurnar á kaffihúsinu á meðan þær eru að leita að nýju heimili. Gestir geta þá komið og kynnst kisunum og sótt um að ættleiða þær.
Önnur kaffihúsi eru með ketti sem búa þar til frambúðar og hafa etv verið heimilislausir og fá að búa á kaffihúsinu og taka á móti gestum en eru ekki að leita að nýju heimili. 

Fyrsta kattakaffihúsið opnaði í Taiwan árið 1998 og njóta nú vinsælda út um allan heim. Kattakaffihús eru einstakt tækifæri til þess að kynnast kisum fyrir ykkur sem ekki geta búið með köttum, eða sem langar að kynnast ketti vel áður en hann er ættleiddur.

Eru kettirnir í heimilisleit?
Já! Við bjóðum upp á einstakt tækifæri til þess að kynnast kisunum áður en þið bætið nýjum fjölskyldumeðlim inn í fjölskylduna.